Árgangur '86

Velkomin á heimasíðu árgangs '86

07.06.2007 11:19:35 / argangur86

Allir að lesa!!!

Jæja þá fer að styttast í það og spenningurinn vonandi farinn að gera vart við sig :D Ætla ekki að hafa þetta langt, bara að láta ykkur vita að það hittast allir í sínum gamla skóla á laugardaginn kl.12 (stundvíslega) þar sem að við hittum kennarana okkar og skoðum okkur aðeins um. Svo kl. 16 þá byrja bekkjarpartýin þar sem við efumst ekki um að verði stuuuuuð!!!!

Brekkurbæjarskóli hittist heima hjá Jón Val á Háholti 1

LK bekkurinn hittist heima hjá Stebba á Ásabraut 19

BJ bekkurinn hittist heima hjá Berglindi á Leynisbraut 2.

Rútan kemur svo og sækir okkur upp ú hálf 7 í partýin og fer með okkur að Æðarodda þar sem að við byrjum á að grilla, allir að muna að  taka grillmat með!!! svo verður bara djammað... :haha:

Endilega verið dugleg að láta þetta berast svo allir séu með þetta á hreinu sem ætla að mæta!!

 

 kv. Maríanna


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 23:03:45 / argangur86

Ert þú nokkuð búinn að gleyma okkur?

Ert þú nokkuð búinn að gleyma að borga fyrir árgangsmótið? :$

 Ef svo er þá hvetjum við ykkur til að leggja inn á reikninginn okkar sem fyrst (upplýsingar um hann í seinustu færslu). Nú hafa einungis 11 lagt inn, já einungis 11!! og við erum ansi hrædd um að fólk sé farið að gleyma að borga! Endilega drífiði í þessu ef þið ætlið að mæta og látið það berast, fresturinn rennur út á 11.maí og hann er endanlegur.

Aðrar fréttir eru þær að Jón Valur Einarsson mun halda bekkjarpartý fyrir Brekkubæjarskóla og þá vantar okkur bara einn úr LK bekknum og BJ bekknum til að sjá um smá gleðskap líka...partýin endast ekki allt kvöld, byrja ca. 4 um daginn og eru til ca. hálf 7 þegar rútan byrjar að sækja alla! Ef e-r er til í að vera með partý fyrir sinn bekk endilega látið okkur í stjórninni vita eða setjið það hér inn á síðuna!

 

Stjórnin :haha:


» 19 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 20:37:52 / argangur86

Bréfið...

Hérna er bréfið sem þið ættuð flestöll að vera búin að fá... ef ekki.. þá endilega lesið áfram :D  

 

 

 

Loksins loksins! Okkar langþráða árgangsmót er á næstu grösum. Þessi merkisatburður verður þann 9.júnínk. í félagsheimilinu Æðarodda ( hesthúsahverfið ). Planið er í grófum dráttum:
  • Hittast um hádegi í skólunum, skoða sig um og rifja upp gamla tíma.
  • Fara í “bekkjarpartý” um 16:00, þar sem hægt verður að spjalla við gamla bekkjarfélaga um lífið og tilveruma (staðsetning tilkynnt seinna)
  • Um 18:00-18:30 kemur rúta og fer með okkur upp í Æðarodda þar sem planið er að grilla og hafa gaman langt fram eftir nóttu (hver kemur með mat og drykk fyrir sig).
  • Rútan kemur síðan um 03:00 leytið og skutlar okkur upp á Skaga.

 Kostnaðurinn við þessi herlegheit er 2000 kr á einstakling, sem þarf að borga fyrir 11.maí. ATH! þeir sem voru í Grundaskóla borga aðeins 1000 kr, vegna þess að þeir eiga uppsafnaðan sjóð úr 10.bekk)

Þeir sem ætla að mæta, verða að borga fyrir tilsetta dagsetningu og gildir það sem staðfesting á mætingu.

 Reikningsnúmer: 0186-05-064791

kt. 290786-2829 

Bekkjarpartýin verða auglýst síðar inná heimasíðunni okkar, blog.central.is/argangur86.
 

Við vonumst til að sjá sem flesta og ef eitthvað er óljóst, þá vinsamlegast hafið samband við okkur. 

kv. Árgangsnefnd.

 Maren Lind  sími: 691-1672

Maríanna sími: 865-2091

Kári Harðar  sími: 849-2829

Bryndís Odda sími: 849-7141 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 22:53:05 / argangur86

Dagsetningin!!

Jæja...

Við vorum á fundi áðan og sem betur fer er komið samkomulag um dagsetningu.. Við ákváðum að fara eftir kosningunni og er því rétt dagsetning 9.júní 2007!! Því er um að gera að fara að plana sumarið og taka frá þennan dag þar sem við viljum jú að sem flestir mæti :D :haha:

Annars er ýmislegt sem hægt er að fara að plana, við erum að finna út hvað þetta kostar allt saman mikið, og kemur það allt í ljós á næstu vikum. En svo er eitt sem þarf að fara að huga að...

  • Það vantar staði fyrir BEKKJARPARTÝIN!! um að gera að fara að spá í þessu og bjóða sig fram, annaðhvort hægt að gera það í komment eða senda póst á argangur86@visir.is :D
  • Við viljum líka biðja ykkur að senda myndir af ykkur+fjölskyldu(fyrir þá sem það á við) svo hægt sé að útbúa plagöt með "fyrir/eftir" myndum til að hengja upp á árgangsmótinu. Best væri að senda það bara á sama netfang: argangur86@visir.is
  • Og svo er um að gera ef þið hafið einhverjar hugmyndir um hvað væri hægt að gera þennan dag, eða um kvöldið, að senda það á sama netfang, (held að það sé óþarfi að skrifa það í þriðja skiptið) :D ;) 

Annars erum við á fullu að skipuleggja þetta og það koma fleiri upplýsingar innan tíðar... en um að gera að vera dugleg að fylgjast með hérna á síðunni... :D

Maren Lind


» 23 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 21:26:06 / argangur86

ATH!

Jæja... nýjar upplýsingar! ;)

Við höfum ákveðið að skoða dagsetninguna aðeins betur og því ætlum við að senda ykkur e-mail núna á mánudag/þriðjudag.  Við höfum tvær dagsetningar í huga, og við viljum biðja ykkur að segja hvor dagurinn hentar betur og senda okkur til baka á það netfang sem tiltekið er í póstinum.. Þeir sem verða ekki búnir að fá email þá eru vinsamlegast beðnir um að setja e-mail-in sín í skoðanir.. :D

Svo koma meiri upplýsingar í byrjun næstu viku :D

Endilega verið dugleg að ýta við fólki og segja þeim frá þessu..

kv. Maren Lind


» 31 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 22:47:00 / argangur86

og það verður djammað...

Jæja við í stjórninni hittumst í kvöld til að ræða málin og erum nokkurn veginn komin með hugmynd um þetta. Það hefur gengið mjööög illa að fá e-n stað lánaðann en erum með nokkra upp í erminni og vonum að það gangi allt upp! Það kemur allt betur í ljós á næstu vikum...

 

 

 

Annars er dagskráin þannig að við hittumst um hádegi öll í okkar skólum, svo verða bekkjarpartý seinnipartinn. Eftir þá skemmtun liggur leið okkar með rútu á e-n yndælann stað þar sem gleðin heldur áfram og við grillum öll. Hugmyndin er að allir komi með sitt til að grilla, þá getur hver og einn ráðið þeim kostnaði. En tímasetningin er ekki alveg komin á hreint en það rætist út úr því þegar húsnæðismálin eru klár.

 

 

 

 

Við munum síðan senda ykkur öllum bréf um hvenar þið þurfið að skrá ykkur og allar þær uplýsingar um árgangsmótið sem þið þurfið!

 

Endilega verið dugleg við að láta það berast með síðuna því það eru enn einhverjir sem vita ekki af henni!

 

Stjórnin :D

 

 

 

 


» 33 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 14:52:19 / argangur86

jæja krakkar mínir...

Það lýtur út fyrir það að við munum öll borða saman (eða grilla) á þeim stað þar sem árgangsmótið verður! þetta var frekar jafnt en það voru aðeins fleiri sem vildu að við borðuðum saman :haha: það verður bara gaman og kemur hópnum vonandi betur saman! svo er það bara seinni tíma vandamál hvað við borðum og hvernig það er borgað. Veit ekki með Brekkubæjarskóla og Heiðarskóla en Grundaskóli á pening safnaðann síðan úr sjoppunni og þá nýtum við hann e-ð (deilist niður á fjöldann í hópnum) en það væri frábært ef einhver getur sagt mér hvort að þið vitið e-ð um fjárhagi bekkjanna!??

Annars er lítið annað um að vera í skipulagi varðandi árgangsmótið, erum ennþá að reyna að finna stað, verður vonandi Miðgarður en það kemur allt vonandi í ljós fljótlega...endilega verið svo yndæl og commentið ef þið vitið um e-n stað sem við getum verið á. Barbró kemur ekki til greina þar sem hann er ennþá til sölu =/

Maríanna


» 24 hafa sagt sína skoðun

28.11.2006 16:08:44 / argangur86

...

ENDILEGA TAKIÐ ÞÁTT Í SKOÐANAKÖNNUN!


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 16:18:08 / argangur86

Stjórnin að verða klár !!

Jæja þá er þetta nokkurn veginn komið á hreint með stjórnina! Ég og Maren verðum frá Grundaskóla, Bryndís Odda og Kári H. frá Brekkubæjarskóla og svo vantar okkur einhvern 1 úr Heiðaskóla :D

Nú er bara um að gera að koma með hugmyndir að hvernig þið viljið hafa þetta svo við getum síðan stolið þeim af ykkur og ákveðið hvað eigi að gera!! En endilega ekki vera feimin um að koma með hugmyndir um hvort við eigum öll að borða saman, eða borða í bekkjarpartýinum o.s.frv. Látið þetta bara streyma inn :haha:

Maríanna


» 27 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 00:50:33 / argangur86

Loksins loksins!

Jæja það hlaut að koma að því að við myndum þurfa að gera smá blogg fyrir komandi árgangsmót! Við stöllurnar erum að leita eftir allskyns hugmyndum, s.s. skemmtiatriðum og hvenar árgansmótið hjá okkur ætti að vera! Við erum búnar að vera að pæla í að reyna að halda  það um miðjan maí, þegar allir eru búnir í prófum og tilbúnir að sletta aðeins úr klaufunum! og endilega komið með comment á það hvernig ykkur líst á það eða ef þið eruð með einhverjar aðrar snilldar hugmyndir. Svo er bara um að gera að láta það ganga að við '86 árgangurinn séum komin með síðu svo allir geta fylgst með!

Maríanna og Maren (Grundaskóli) :haha:


» 31 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill